MMA
Eru tímar í blönduðum bardagaíþróttum.
MMA1 - Byrjendanámskeið
Lokað byrjendanámskeið þar sem æft er 2x í viku í 4 vikur. Dagsetningar fyrir ný námskeið eru auglýstar á Instagram (@rvkmma) og forsíðu rvkmma.is
Farið er yfir helstu undirstöðuatriðin í MMA; Wrestling, Kickbox og Nogi/Submission Grappling.
Á meðan námskeiðinu stendur hafa iðkendur aðgengi að öllum 5 LotuForm þrektímum í stundatöflu. (NB. Iðkendur í áskrift fá 50% afslátt af öllum byrjendanámskeiðum.)
Að námskeiði loknu fá iðkendur leyfi til að mæta í opna framhaldstíma.
Búnaður: Stuttbuxur, bolur og gómur (nauðsynlegt). MMA hanskar, legghlífar, punghlíf (valfrjálst).
MMA1: Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20:15
MMA2 - Grunntímar
Allir iðkendur sem hafa lokið MMA1 byrjendanámskeiðinu geta mætt í þessa tíma.
Tímarnir eru ætlaðir öllum sem hafa grunn í MMA en lögð er áhersla á undirstöðuatriði íþróttarinnar.
Notast er við drillur, tæknilegar útskýringar og æfingar til að auka getu iðkenda.
MMA2: Þriðjudaga og fimmtudaga. kl. 19:15
MMA3 - Framhaldstímar
Þegar iðkandi hefur náð fullnægjandi tökum á grunntækninni býðst honum að fara í MMA3 framhaldstíma.
Byggt er á tækni úr grunntímum en æft er af meiri ákefð, tímarnir miða að því að undirbúa þá sem hafa áhuga á keppni í íþróttinni.
MMA3: Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:15
ÞJÁLFARAR: Bjarki Þór Pálsson, Magnús Ingi Ingvarsson, Aron Kevinsson og Aron Leó Jóhansson.