Glíma fyrir börn

Glímufélag Reykjavíkur rekur öflugt glímustarf innan Reykjavík MMA á Viðarhöfða 2.

Krakka BJJ eru skemmtilegir tímar fyrir börn á aldrinum 5 - 10 ára.

Tímunum er aldursskipt í tvö bil: 5 - 7 ára og 8 - 9 ára.

Æfingar eru alla þriðjudaga og fimmtudaga kl 16:30 - 17:15
Tímarnir eru 45 mínútur á lengd.

  1. Haustönn 2024 fyrir 5 - 9 ára hefst þriðjudaginn 10. September.

  2. Verð fyrir önnina er kr. 38.900

  3. Nýta má frístundastyrk sveitarfélaganna til þess að greiða fyrir önnina.

Hnefaleikar Unglingar

Haustönn hefst 4. September.

Unglingar: 12-17 Ára.

Í tímunum er farið yfir helstu grunnatriði í boxi með það að markmiði að veita nemendum grunnskilning á tækni í íþróttinni. Námskeiðið hentar vel fyrir byrjendur óháð fyrri reynslu.

Kennt er þrisvar í viku og er æfingatímum útlistað hér fyrir neðan.

Tímar

  • Mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl 16:15

    Búnaður: Stuttbuxur og stuttermabolur, box hanskar og skór.

  • Haustönn hefst miðvikudaginn 4. September.

Þeir sem eru skráðir á önnina hafa aðgengi í aðra tíma í stundatöflu svo lengi sem tæknileg geta sé til staðar. Ef vafi leikur á bendum við á að ræða við þjálfara.

Verð fyrir önn: 48.900 kr.

 

MMA Unglingar

Haustönn hefst 11. September

Unglingar: 10 - 14 ára og 14-18 ára

Í tímunum er lögð áhersla á grunntækni í ýmsum bardagaíþróttum. Tímarnir eru fjölbreyttir og ættu því að henta flestum. Aðal áherslur eru lagðar á jiu jitsu, wrestling og kickbox. Kennt er þrisvar í viku og er æfingatímum útlistað hér fyrir neðan.

Í unglingatímunum er lögð sérstök áhersla á félagslíf og liðsheild, í formi hittinga og keppnisferða. Hittingar eru í nokkur skipti á önn, en stefnt er á æfinga eða keppnisferðir erlendis í fylgd þjálfara og foreldra einu sinni á ári.

Upplýsingar um ráðstöfun frístundastyrks veitir Hrafn Þráinsson. Hrafn@rvkmma.is

Tímar

  • 11 - 14 ára mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl 16:15

    Búnaður: Gi galli, stuttbuxur og stuttermabolur, box hanskar.

  • 14 - 18 ára þriðjudögum og fimmtudögum kl 19:15 og á laugardögum kl 11:10.
    Búnaður: Legghlífar, MMA hanskar, stuttbuxur og bolur, tannhlíf.

  • Hægt er að nýta frístundastyrk sveitarfélaganna.

Verð fyrir önn: kr. 47.900 kr.

Umsjónarmenn

Hrafn Þráinsson er umsjónarmaður barna og unglingastarfs hjá RVK MMA ásamt því að vera yfirþjálfari yngri aldursflokka.

Hrafn er menntaður Íþrótta og Heilsufræðingur frá Háskóla Íslands og hefur séð um ungmennastarfið hjá okkur síðastliðin ár.

Hrafn er svartbeltingur í BJJ og hefur keppt bæði í áhugamanna MMA ásamt því að vera virkur keppandi á mótum hér heima og erlendis í BJJ.

Aðstoðarþjálfari er Þorgrímur Þórisson. Þorgrímur er brúnblábeltingur í BJJ. Þeim til halds og trausts er Emil Daði en hann er uppkominn úr yngri flokkum RVK MMA.